|
 |
|
Aug 13, 2006
Kæri veislustjóri, gestir og brúðhjón.
Ég man daginn sem þau hittust fyrst, það var um það leiti sem okkar margumræddi virðuleg og ég tala nú ekki um fjölbreytilegi vinahópur var að myndast.
Við sátum í matsal Menntaskólans við Sund. Þorleifur rölti hægum, nánast óöruggum skrefum inn í matsalinn skimandi yfir salinn í leit að Orra vini sínum.
Ég átt í djúpum samræðum við Önnu Siggu um flekakenninguna og skildi lítið í því að Anna starði út í loftið og löngu hætt að hlusta á útskýringar mínar á stækkun Alpana.
Rautt andlitð gægðist í gegnum ljósar krullurnar á dökkhærða manninn sem staðnæmdist við borðið með augun föst á Önnu Siggu og andlitið álíka rautt og hennar.
Ekki leið langur tími eða mörg videokvöld þar til að þau kúrðu í fanginu á hvort öðru, eins undarlegt og manni finnst í dag þá gekk samband þeirra ekki lengra þau 4 ár sem við sátum í MS.
Leiðir þeirra skildu þegar Anna Sigga fór til Kanada í nám, en eins og rómantískir höfundar hafa skrifað alloft þá býr eldur í gömlum glæðum.
Anna Sigga flytur til Svíþjóðar í framhaldsnám og Þorleifur til Danmerkur og einhverstaðar þar hittust þau á ný. Að sjálfsögðu eins og þeirra er hátturinn sátu þau á sambandi sínu. Okkur hinum grunuðu þó að eitthvað væri í gangi þegar heyrst hefði að Þorleifur væri á sífelldu flakki milli Danmerkur og Svíþjóðar undir yfirskini íslendingapartýa og að sjálfsögðu var það heima hjá Önnu Siggu.
Í dag 11 árum síðar, enn yfir sig ástfangin. Þorleifur og Anna Sigga fyrir hönd allra í salnum vil ég óska ykkur innilega til hamingju með þennan yndislega dag. Vil ég svo byðja alla um að lfyta glösum og skála fyrir brúðhjónunum.
Posted at 07:23 am by arnyb
Permalink
Jun 5, 2006
Fyrsti hluti tilraunarinnar
nákvæmlega viku eftir þarsíðust færslu mína er ég að tékka á skilaboðum
sem hafa komið inn á einkamla.is til þessar giftu. Í dag eru 103
skilaboð í skjóðunni takk fyrir, með fyrirsagnir á við "eg er sá rétti
fyrir þig", "serðirinn" og svo framvegis snilldarkomment og nikk.
Næsta skref er að setja inn auglýsingu fyrir þessa einstæðu ;o) niðurstöður verða svo birtar síðar :P
Posted at 12:00 pm by arnyb
Permalink
Jun 4, 2006
Babble begins!
Í dag hef ég eytt töluverðum tíma í sjónvarpsgláp. Hvort sem fólk
kallar þetta tímasóun eða eyðslu kemur málinu hreinlega bara ekkert við.
Rumor has it, er myndin sem ég er búin að glápa á með öðru auganu. Að
sjálfsögðu fjallar hún um konur í almennri krisu og giftingar, já hvað
annað!! mætti halda að ekkert annað en krísur og giftingar séu það sem
kemst að í huga kvenna.
En nú ætla ég mér að koma mér úr nöldrinu og í það sem ég var að hugsa.
Um giftingar! Af hverju giftir fólk sig? og af hverju eru brúðkaup
svona rosalega væmin? Af hverju eru karlar og kvenmenn ávalt í
einhverjum giftingarkrísum í kvikmyndum, af hverju vill fólk yfir höfuð
giftar sig?
Hlutur sem ég skil ekki og hlutur sem ég vil og vil ekki gera. Svo
virðist sem bandarískar konur séu giftingasjúkar, pabbi leiða upp að
altari, allir horfa á stúlkuna, blóm, hvítur (jómfrúarlitur=litur
hræsninnar, nei kommon hve mikill hluti kvenna sem gifta sig í hinum
vestræna heimi í dag eru hreinar meyjar/jómfrúr??) Hvað er svona fjandi
frábært við að giftar sig? Mér er stór spurn, og hvað er svona mikil
snilld við risastór brúðkaup og öll þessi blóm? Jú, þetta er fínt,
fallegt, fancí og stúlkan fær eins mikla athygli og hún þarf á einum
degi til að það endist henni það sem eftir er ævi hennar. Kannski það
sé málið? Kannski þarf maðurinn hennar ekkert að sinna henni meira
eftir brúðkaupið ;o)
Allar stúlkur ræða giftingar, og margar hverjar hafa innst inni ákveðið
hvernig svoleiðis brúðkaup skulu vera, i hverju á að vera og hvar og
hvernig framkvæmt. Verð að segja að mér finnst þetta laumuheillandi þó
án þess að vera með þetta á heilanum, þess vegna fæ ég útrás hér fyrir
þráhyggju míina. Ég sór þess eyð að gifta mig aldrei, og er enn ekki
gift tæplega 27 ára að aldrei og mér finnst það bara í hinum besta
lagi. Fyndið samt eftir að aldurinn fer að hrynja á mann að manni fer
að langa að stofna fjölskyldu og heimili sem maður vill helst búa í það
sem eftir er ævinnar, en það er ekki heillandi fyrir mér ekki enn, ekki
eins og kannski ætti að vera.
Mér finnst mjög undarlegt að fólk á mínum aldri og yngra er gift,
eitthvað sem ég skil alls ekki!! Eflaust æðislegt þegar fólk er tilbúið
í þetta blablablablablabla
Veit ekkert enn hvað mér finnst um brúðkaup en ég skil þau ekki,
End of babble
Posted at 07:26 am by arnyb
Permalink
May 29, 2006
Um helgina kom upp umræða um hvernig heimur karlmanna virkar, af
forvitnissökum að sjálfsögðu. Mig langar ss að vita hvort ef kona sem
setti inn auglýsingu á einkamál.is sem liti svona út "Ég er 33 ára gift
kona með 3 börn (svona td.) að leita mér að skemmtun í lífinu." myndi
fá mikla eða litla athygli miðað við konu sem væri með mjög látlausa
auglýsingu og einhleyp i leit að skuldbindingu. "Ég er 33ja ára
einhleyp kona að leita að sálufélga mínum sem er einhverstaðar þarna
úti. Ég er barnslaus en búin að koma mér vel fyrir í lífinu".
Spurning um að gera alvöru úr þessu ;)
Posted at 03:58 pm by arnyb
Permalink
May 28, 2006
Suma daga á maður ekki að fara framúr rúminu
Held að dagurinn í dag hafi verið einn af þeim!! ÉG er
núna búin að eyða deginum í að fara í útskrift með frábærum mat!!! að
sjálfsögðu þegar þessi kona á í hlut. Þvo þvott, vakna seint, þvo meiri
þvott, þrífa upp eftir kisurnar minar, þrífa kattahland eftir að ég er
ekki búin að vera heima í 2 daga!! týpískt, fockin kettir!! og nú er ég
að mana mig upp í að ráðast á uppvaskið og leggjast svo í sófann og
deyja!!! Viðburðaríkur dagur...svo er ég að reyna að dunda mér við þetta þessa stundina, algjörlega useless próf sem eru bara fyndin | You Are an Intense Kisser | When you kiss, it's deep and powerful
You don't take kissing lightly
Your kisses always have meaning
And they always make your head spin |
| Your Relationship Will Last... A Long Time! | Your guy is ideal, as close to Mr. Perfect as he could be If you took this quiz, you may be doubting that... Don't! No guy is perfect but yours comes really close You guys will last for many years, as long as you appreciate him! |
Það er naumast!!! segi ég nú bara!!!
| Men See You As: An Attainable Challenge | You know how to make your man crave more of you But you also know when to show some interest back You're good at keeping your guy guessing And over time, you'll let him know how you really feel |
| You Are Most Like Miranda! | While you've had your fair share of romance, men don't come first Guys are a distant third to your friends and career. And this independence *is* attractive to some men, in measured doses. Remember that if you imagine the best outcome, it might just happen.
Romantic prediction: Someone from your past is waiting to reconnect...
But you'll have to think of him differently, if you want things to work. |
| You Are a Skin Deep Sweetheart | You may be supermodel gorgeous or a plain Jane. It really doesn't matter, because you're confident and secure. You don't go out looking like a slob, but you are low maintenance. You have better things to worry about than whether your nails are the right shade! |
| You Are 20% Girly | Um... you're a guy, right? If not, you're the most boyish girl in the world. And for you, that's probably the ultimate compliment. |
| You Are a Party Girl! | You give Paris Hilton and Tara Reid a run for their money (Who knows? You've probably even run into them at a club or two) While you do have fun - relax a little every so often All those drinks do nothing for your looks - or your bank account |
| Your Element is Wood | Your power colors: green and brown
Your energy: generative
Your season: spring
Like a tree, you are always growing and changing. And while your life is dynamic, you are firmly grounded. You have high morals and great confidence in yourself and others. You have a wide set of interests, and you make for intersting company. |
What| You Are 33% Fake | The real you is something you embrace and don't mind enhancing. You know that a few beauty secrets aren't a big deal, as long as you look good. |
| You're a Window Shopper! | You know that shopping's a blast, but you prefer to save your money You hardly ever give into an impulse buy, unless it's a total steal You've always got the most money of your friends - and you never have to borrow And you've got a nice wardrobe too ... of classic pieces that last years! |
Posted at 02:07 pm by arnyb
Permalink
Dagurinn eftir kosningar.
Er þynnkudagur fyrir margan íslendinginn. Gærkvöldið einkenndist
af ríg millri Vinstrisinnaðra græningja drekkandi bláu
sjálfstæðisbolluna hennar mæju og já Mæju, sjálfstæðismanneskju óttans
sem gerði bolluna góðu afskaplega bláa og framsóknarkertin í stíl
(gulgræn eða bara skítagræn eins og flokkurinn).
Við græna fólkið erum það líbó að það skiptir ekki máli hvað er látið
fyrir framan okkur, við drekkum það samt hvort það sé sjálfstæðisbolla
eða mjólk. Gunnar "einræðisherra/næsti Berlusconi" var efni
kvöldsins þegar Mæja tók upp myndavélina sína. Þetta þótti afskaplega
fyndið enda vel búið að drekka vel af þessari
fjöldalítrasjálfstæðisvodkabollu. Spurningin var "Hvað kemur í huga þinn þegar þú hugsar um Gunnar kópavogstjóra með bóner".
Ég verð að segja að ég bý í Kópavogi og trúið mér ég vissi varla hver
þess stórvaxni skörungur var enda kannski ekkert skrýtið!!! Mig langar
bara ekkert að vita það eftir að hafa séð manninn! En að sjálfsögðu var
því reddað (að ég bæri hann augum) og viðbjóðissvipur læddist fram á
andlitið við þessa óhugnalegu spurningu.
Bollan var búin og fólk komið í klapp gírinn. Það var klappað fyrir
hinu og þessu og þessu og hinu, hvort sem það var sopinn úr glasinu eða
að einhver ætti vini í sms formi. Kosningavakan rétt hálfnuð, þá var
rölt í bæinn þar sem ótrúlegur fjöldi fólks var samankomið til að fagna
sigri hinna og þessa flokka eða einungis því að það varð stúdent þarna
fyrr um daginn.
Röltið var tekið með trompi! Fyrst Dillon, svo grandrokk og þar á eftir
Celtic. Á meðan röltinu stóð byrjaði fólk að týnast hægt og rólega út
úr hópnum og sagðist fara heim!!! Hópurinn minnkaði óðfluga þar til
eftir voru 2! ÞEgar inn á celtic var komið sullaði fólk þar fram og til
baka, talandi um næsta mann við sig eða þessa frægu kosningabaráttu
"Kaustu rétt!!!!" uppáhaldsspurning almúgans í gær, dag og næstu viku
eflaust.
Röltið var tekið á kvennaklósettið. En það skal ég segja ykkur að er
alræmdur staður þar sem kvennmenn hverfa inn á og sjást ekki lengi vel
eftir á eða jafnvel koma hreinlega ekki út af aftur (þeas að fullir
einstaklingar sjái ekki). Á íslensku kvennklósetti er manni lofað af
fullu fólki að það passar mann og trúnó er eitthvað sem erfitt er að
forðast, hvort sem það er frá vinkonum eða ókunnugum kvenmönnum sem
finnst "kjóllinn æðislegur" blablabla. Klukkutímavera er ekki óalgengt
þegar kvenfólk fer að "púðra á sér nefið" á góðri amerísku.
En það er til leið út!!! fyrr jafnvel ef þú ert heppin/nn. Spurningin
er hvort þú eigir ekki "vin" sem hringir í þig á meðan klósettferðinni
stendur og "bjargir" þer þar út með því að þú nýtir vininn fulla sem
afsökun fyrir að flýja kvennaklósettahelvítið.
Posted at 11:09 am by arnyb
Permalink
May 1, 2006
Heilsa borgar sig ekki.............
Ég hef komist að því að það borgar sig ekki að vera heilsusamlegur hvað varðar fæðu!!!
Ég sit núna heima hjá mér fyrir framan lappann minn og er í því að menga umhverfi mitt eftir bestu getu!!!
Ég er mjög hrifin af pönnukökum, vægast sagt! Ömmu minni tókst ótrúlega
vel að gera mig háða pönnukökunum sínum sem voru bakaðar hverja einustu
helgi sem ég kom til hennar ásamt heitu kakói að sjálfsögðu.
Því miður neyðist ég til að deila með ykkur mínum frægu
bandaríkjarassafæðumeltingarfæraveseni, svo ég byðst fyrirfram
afsökunar og byð fólk vinsamlegast um að hætta að lesa hér ef það hefur
ekki áhuga á mínum rassi.
Ég þjáist af allskonar fæðuóþoli sem mér líkar ekki og er sífellt að
berjast gegn með því að prufa eitt og annað til að geta étið það sem ég
vil og þ.m.t. pönnukökur sem ég ELSKA ÚT AF LÍFINU (ömmu að kenna, guð
blessi minningu hennar).
Í dag ákvað ég með mitt mjólkur/hveiti/ger óþol/ofnæmi að búa til
pönnukökur sem innihéldu soyamjólk og spelthveiti ásamt einhverju álíka
heilsukjaftæði, en hvað um það aftur að mallanum og afleiðingum
speltpönnslanna. Þessar pönnukökur voru alveg svakalega góðar þrátt
fyrir hollustuna og átum við Björninn tvöfalda uppskrift í dag af
henni, þó aðallega ég með mína græðgi í pönnslur að vopni.
Og núna sit ég hér með meltingarfæratruflanir óttans og þakka fyrir að
Björninn sé heima hjá sér og barnið í öðru herbergi því ég er að eyða
ósonlaginu með prumpufýlunni minni!!!! já ég sagði prumpu!!!fýlu!!! þakkiði guði fyrir að annaðhvort þekkja mig ekki eða að þið séuð hvergi nálægt mér akkúrat núna og í nótt!!
Góða nótt snúllur og dreymi ykkur vel
Posted at 04:53 pm by arnyb
Permalink
|
|
|